Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



Klölla




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Ég er búinn að fara í klillu, undurfagri ljónsmakkinn er horfinn á braut. Hann kemur þó aftur, ég er handviss um það. Ójá, hann mun koma aftur. Nú er ég eilítið strákslegur og ég þurfti að sýna skilríki rétt áðan til þess að leigja mér Batman myndina sem er bönnuð innan 12 ára. Ég verð víst bara að sætta mig við þetta, það er alveg deginum ljósara.

Það er fiðulball á morgun, þar mætir 6. bekkur í sínu fínasta pússi og dansar eitthvað samkvæmisrassgat í tvo tíma eða eitthvað, ég hef ekki hugmynd, kann það ekki. Svo er það þessir dansar sem ég kann ekki heldur, missti af dansæfingunni vegna fótboltaæfingar. Ég held að ég hafi ekkert bætt mig ógeðslega mikið á þessari tilteknu fótboltaæfingu. Þannig að svona eftir á að hyggja þá hefði verið sniðugra að fara á þessa dansæfingu, því þá myndi ekki líta út eins og eitthver böllur þarna á dansgólfinu, jæja svonaeridda.


S-Solid


Responses to “Klölla”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com