Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.


mánudagur, febrúar 23, 2009

Ég ætla nú ekki að breyta þessum vefmiðli í e-ð myndbandsgaman en þangað til skáldagyðjan kemur aftur til mín þá verður þetta bara nægja og það gerir það að öllum líkindum, af því þetta er eiginlega fáránlega fyndið.



Fólk virðirst þó ekki vera sammála mér nema í einangruðum tilfellum. Mér finnst ömurlega fyndið að vera e-ð spakur upp í tré, að sigra heiminn. Svo kemur e-ð fokking illfygli og hrifsar þig til sín og drepur. Mögulega beisik. Mögulega fyndið. Að vísu er náttúran grimm og kannski ekkert til að hlæja að.

Kannski er náttúran e-ð til að hlæja að. Vísa í sprenghlægileg youtube myndbönd.



Gunnarsson út.

| laugardagur, febrúar 07, 2009

Þetta er svona alvöru strákar, með alvöru áherslur. Ég er alveg virkilega ánægður með þessa tilteknu vinnslu. Einmitt.



Þetta er framtíðin, fortíðin og nútíðin. Byssur. Beisik. Ég þarf að fara skúlpa mínar betur það er djöfulsins deginum ljósara. Ó guð.


Gunnarsson út.

| miðvikudagur, febrúar 04, 2009

Já, nú tríta ég lýðinn.




Mögulega borderline. Samt alls ekki. Þetta er svo mikið komik-relíf með Vísitölu-Vignir. Beisik. Mun jafnvel bæta fleiri grímum í þessa samsuðu.

Gunnarsson út.

| mánudagur, febrúar 02, 2009

Minn síðasti póstur var minn 550. í röðinni er vissulega áfangi útaf fyrir sig. Fólk hefur mögulega haldið að það hafi veri minn síðasti póstur af því það kom í kjölfarið 20 daga pása af minni hálfu sem er gjörsamlega ófyrirgefanleg. Eina ástæðan fyrir því að ég fékk enga góða hugmynd á þessu tímabili. Í rauninni er hugmyndin ekki komin ennþá. Ég er að minnsta kosti kominn fram úr rúminu. Já, ég hef sem sagt legið upp í rúmi í þunglyndi vegna skorts á góðum hugmyndum, hrottalegt. Er kominn með svona öryrkjabakverk eftir að hafa legið of mikið.

Leiðindamál ekki spurning.

Annað sem er ekki leiðindamál. United er komið á toppinn. Sem er vel.


Ég ætla að taka mig á. Éta þara og e-ð til þess að frjóvga þennan jarl sem við köllum mig.

Gunnarsson út.

|

Ýmsar upplýsingar:

msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com