Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.


föstudagur, september 29, 2006

Já, í gær fimmtudag fórum við Matgæðingarnir ásamt Birki Veigarsyni á Apótekið, huggulegan og einstaklega póst-módernískan stað í miðbæ Reykjavíkur. Kristján Cowell mun þó segja ykkur betur frá honum á síðu Matgæðinganna eftir nokkra daga.

Alveg drullugott sjitt, svo hittum við Geir Ólafs, alger meistari. Um leið og við komum inn þá var hann þarna að borða með e-i dömu, strax byrjaði hann að gjóa augunum til okkar. SVo þegar hann stóð upp frá borði leit hann aftur á okkur, og sagði: "verði ykkur að góðu strákar", ég greip tækifærið og bað hann um að vera á mynd með okkur, hann var ógeðslega fljótur að segja já, það var eiginlega eins og hann hafi búist við þessu. Þetta er maður sem kann að vera frægur.




Þetta er held ég besta mynd í heimi.

Uppfært:

Þetta myndband var tekið upp á leiðinni upp í Elliðárdal þar sem Gæðingarnir og Birkir ætluðu að mæta í stjörnuskoðun í borgarmyrkvanum. Ég ætla bara að að taka það fram að áfengismagn í blóði okkar var miklu mun minni en þetta hljóð/mynband gefur til kynna, hressleikinn ríkti.

http://www.youtube.com/watch?v=WJE48dnQ4Wo

Rétt í þessu var ég að feisa Ellert á msn:

elli says:
burg!
beggi - beggikempa.blogspot.com says:
vött?
elli says:
megavött
beggi - beggikempa.blogspot.com says:
gígavött
elli says:
teravött
beggi - beggikempa.blogspot.com says:
femmtóvött
beggi - beggikempa.blogspot.com says:
tekinn
elli says:
haha

b-dawg

| þriðjudagur, september 26, 2006

Já, loksins tók ég þennan helvítis tjarnarhring á mannsæmandi tíma, eða 8:49, sem já alveg þokkalegt, að vísu var ég 9 sek. frá tíunni, en ég sætti mig alveg við 9,5. Þetta er allt saman gott sjitt. 2500 m á 8:49, jájá, verð eiginlega að bæta mig um 10 sek, til þess að ná 10 í þessum andskota, sei sei.

Ég og Ellert tókum engann Epic Snake Battle Game í dag. Þeir sem vita ekki hvað það er, þá erum við piltar í heljarinnar túrneringu. Þetta er eiginlega bara borðspilið "snakes and ladders", en ég og Lertmeisterinn höfum glætt þennan gamalgróna leik nýju lífi með því að skýra alla snákana hinum ýmsu nöfnum.


Þessi leikur er í Kvennólærdómsskruddunni og verð ég eiginlega að hrósa þeim Kvenskælingum fyrir góða hugmynd. Það er að vísu snákur sem leiðir frá reit 99 að reit 1 sem er vissulega blóðugt. Ég og Ellert skýrðum þann djöful "Níðhögg". Mig minnir að ég sé að leiða með 18 stigum gegn 10. Við spilum þetta einungis í tímum, oft verður Jarðfræði eða íslenska fyrir valinu. Svona getur maður gert gott úr skólanum, alveg fáránlega sniðugt.

b-dawg

| föstudagur, september 22, 2006

Það er ekki laust við að ég finni fyrir smá höfnunartilfinningu þessa stundina, þar sem ég kom hvorki í Kastljósinu né morgunblaðinu, auðvitað er þetta eins og blaut tuska í andlitið, alveg virkilega sárt. Ég verð bara að halda áfram á sömu braut og vona að fjölmiðlar fari bráðum að sjá mig í réttu ljósi, í birtu þeirri þar sem ég er bæði sætur, ljúfur og skemmtilegur.

Ég ætla mér að ráða bót á þessu, ég þrái að allir sjái mig í réttur ljósi, góðu ljósi, jafnvel geng ég svo langt að segja besta ljósinu...tanlampanum.

Fyrsta liðinn í þessari "makeover of da Burg" kláraði ég í gær.

Já, ég fór á Borgarbókasafnið og fékk þessa rituðu snilld. THE MAN´S COMPLETE GUIDE TO LOOKING GREAT! Þetta verður mín Biblía næstu daga, mánuði og jafnvel ár. Að vísu þarf ég að skila þessari skruddu eftir um það bil 27 daga en ég mun sko nýta þessa daga, það er alveg deginum ljósara. Eftir 27 daga verð ég fullkominn.

Svona var ég fyrir um það bil viku síðan, að benda á vítamín, haha ógeðslega ómanly og ókúl. Svo er ég líka með e-m stórum gaur sem lætur mig líta út fyrir að vera lágvaxin, það mun sko ekki gerast aftur , ónei.

Bíðiði fokking bara. Ég verð fullkominn.

b-dawg

| miðvikudagur, september 20, 2006

Já, það má nú með sanni segja að ég hafi verið í brennidepli í dag. Dagurinn byrjaði ósköp venjulega þar sem strákurinn vaknaði, fór í sturtu og slíkt. Það var svo ekki fyrr en í hádegishléinu sem hjólin byrjuðu að snúast.

Ég, Ellert og Jóhann Gísli vorum að leika okkur með knött á Austurvelli, þegar við vorum nýbúnir að slá met í því að halda bolta á lofti kom huggulegur ljósmyndari frá Morgunblaðinu og tók myndir af okkur í blíðunni, þó er ekki víst að þessar myndir komi í blaðinu á morgun, vonum bara að það sé gúrkutíð og þessir þrír sætu drengir á Austurvelli séu heitustu fréttirnar.

Ég hélt nú að mínar 15 mínútur væru liðnar, en nei, sú var ekki raunin, er ég labbaði út úr Gamla Skóla kom fréttakona arkandi til mín og spurði fyrst Eyþór um hópslagsmál og svo mig, mér finnst þó tæpt að þetta komi í fréttunum að því ég var eitthvað að fokka í konunni. Mér finnst þetta fínt.

Það gæti þó alveg eins verið að ég fái engar 15 mínútur það er að segja ef þetta kjarnagóða efni verður ekki notað í fjölmiðlum Íslands,.

Ég vona nú samt að ég fái mínar fimmtán.


b-dawg

| þriðjudagur, september 19, 2006

Ég, Beggi, as in Burgmasta Bee gerði ég as is klárlega mér leið útí Tígurinn í miðbænum eftir að snætt ljúfa máltíð á Indókína. Ég skil ekki af hverju þessi búð er ekki alltaf skítdjöful full útúr dyrum. Þessi búð er best í heimi, þó að svona 60%-70% af því sem ég kaupi þarna nota ég aldrei, þá er svo ótrúlega gott að eiga slíka hluti ef í harðbakka slær.

Til dæmis ef vondi maðurinn myndi segja við mig:

"Hey! láttu mig fá hengirúm annars skýt ég þig í hausinn!!!!!!!"

Þá segi ég:

"Augnablik"

Fer og sæki mitt hengirúm sem ég keypti á aðeins 400 kr í Tígurnum og læt viðkomandi fá og slepp við að byssukúlu í höfuðuð, allir sáttir, nema ég. Ég var þarna auðvitað að tapa 400 kr., sem er kannski léttvægt miðað við það að ég gæti hugsanlega misst lífið í þessum umtöluðu aðstæðum, svona er þetta magnað líf. Ég tel það að vísu sérstaklega einstaklega ólíklegt að umtalaður ég lendi í slíkum aðstæðum, en það er hins vegar gott vita að til þess að ef ég lendi í þessu þá á ég alltaf möguleika.

En að öðru, ég er klárlega að fara úr hárum, makkinn er orðinn það mikill að ég ræð næstum ekki við þennan djöful. Það tekur mig svona um það bil 120000000000000000 femmtósekúndur að gera mig til á morgnana, sem er jahh , þónokkuð.



b-dawg

| fimmtudagur, september 14, 2006

Já, þegar Beggi fer að skokka er yfirleitt gott veður. Veðrið sökkaði í dag. Jahh, ég geng nú ekki svo langt að segja að það hafi bókstalfega sökkað. Þegar ég leit út um gluggann eftir að hafa haldið baguette partýíið þá lét veðrirð vissulega vel út. Klárlega logn og smá skúr, svona skúr sem leikur við kinnar manns er maður skokkar í slíku veðri.

Ég tek það fram að fólk þarf að vera nokkuð vel lært í landafræði Seltjarnarness og Vesturbæjarins til þess að skilja þennan andskota:

Bollagarðar: smá skúr

Lindarbraut: Aðeins meiri rigning

Suðurströnd: Aðeins meiri rigning en á Lindarbraut

Nesvegur: Fokkings demba

Hofsavallagata: Fokkings meiri demba en á Nesvegi

Hringbraut: Fokking úrhelli

Frá Nóatúni til svona sirka Bensínstöðvarinnar á Norðurströnd: Fokking úrhelli

Bensínstöð og til Bollagarða: Ljúfur skúr sem leikur um kinnar manns.

Þessi sirka 10 km sökkuðu næstum því.

Eins og sjá má er ég helfokking blautur.




Já, ég hélt líka baguette partý áðan, bauð Kristjáni Cowell og Eysa Aðli ( nf. Eðall þf. Eðal, þgf Aðli?, mér finnst allaveganna að það ætti að vera þannig.) Báðir voru þeir sáttir með sín baguette, enda ekki möguleiki að nokkrum manni finnist mín baguette vera vond, það er bara ekki möguleiki, ekki til í myndinni, sei sei nei.

b-dawg

| miðvikudagur, september 13, 2006

Jájá, svona er þetta, nú sökkar þetta allt saman, þetta fokking sökkar. Fokking líf, ég á bágt, það er fullt sem er ekki í lagi, ég er ógeðslega svona týndur, geðveikt óviss hvað ég ætla að gera með líf mitt. Vitiði hvað, já, mér finnst það fínt. Fyrir framan mig eru þrennar nærbuxur, hreinar eru þær, ójá. Svo eru fjórir bolir. Vitiði hvað, já þetta er fokking mín föt, það á þau enginn annar, rétt eins og sál mína, ég er eini sem á sálina mína.

Að vísu seldi ég djöflinum 12 % af henni þegar mig langað ógeðslega mikið í svona slide-línuskauta, svo seldi ég félaga ömmu minnar 8 % fyrir svona apótekaralakkrís, ég seldi svo alveg 17 % til Manchester United þegar mig langaði að komast á leik. Ég seldi svo 14 % á Hvebbanum fyrir bara e-ð fokking gott djamm.

Fokk, ég var bara að komast að því núna ég er búinn að missa meirihluta í sálinni. Helvítis djöfullinn er alltaf að reyna ná meirihluta, ég er að reyna ná aftur þessum 14 % frá Hvebbanum, þeir eru samt e-ð þrjóskir, vona bara að þeir verði jafn þrjóskir við Satan. Svo get ég alveg gleymt að fá þessi 12 % frá Hr. Djöfla, þessi 8 % og 17 % eru klárlega lost case.


Ohh men. Djöfull sé ég eftir þessu.


Þetta blogg meikaði ekki neitt helvítis sens, jæja, the show must go on.

b-dawg

| þriðjudagur, september 12, 2006

350


Þar sem þetta er minn 350. póstur ætla ég ekki að segja neitt af viti, nema þú veist eitthvað eða eitthvað.

Í staðinn ætla ég að setja inn baneitraða mynd af Matæðingunum sem mér finnst ekki fá verðskuldaða athygli. Þeir vinna alveg hrottalega óeigingjarnt starf en sótsvartur almúginn virðist ekki vera að meta þá, það er klárlega vanmat á Gæðingum. Sem sagt andstæðan við ofmat...





b-dawg

| þriðjudagur, september 05, 2006

Ég var að vinna um daginn, það var lítið að gera, ég ákvað því að byrja að lesa fyrstu bók Móse, já, ég get nú ekki sagt að þarna hafi verið e-ð sem ég vissi ekki, en ég lærði hins vegar fullt af nýjum nöfnum eins og Mahalalel sem varð víst 895 ára, það er alveg helgamalt. Svo má ekki gleyma Jared, hann var 962 ára, það er örugglega af því að hann borðaði alltaf svo hollt Subway. Hann lítur nú ekkert fyrir að vera 962 ára hérna, samt, fit og flottur strákur.



Ég fór á einhverja bíómynd í gær, Volver hét hún víst, spænsku djöfull, eftir einhvern geðveikt frægan leikstjóra sem allir virðast vita hver er nema, ég, Beggi, mér finnst þetta asnalegt, myndin var hins vegar fín.


b-dawg

|

Ýmsar upplýsingar:

msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com