Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.


mánudagur, ágúst 28, 2006

Ég varð fyrir einstaklega óþægilegri lífsreynslu núna fyrr í dag, ég þurfti að klára myndina saw, þessi mynd er ömurleg, hún er hreinlega algjörlega ömurleg. Ég skil einfaldlega ekki hvers kyns manni detti hug að gera slíka mynd. Hann er örugglega geðveikt ljótur með skuggalega loðið bak. Ekki nóg með það að þessi asnalegi einstaklingur geri mynd eins og Saw, þá gerir hann líka mynd eins og Saw II. Ég lét narra mig á þá mynd í bíó og það var líka ömurlegt, jafnvel ömurlegra en að vera hérna einn heima að horfa á Saw, þetta er bara óhuggulegur andskoti, já andskoti segi ég og hika ekki við það.

Eftir þetta tók ég mig hins vegar á. Ég fór í football manager 2005 og hékk í honum í rúmlega tvo tíma.

Þegar klukkan var orðinn rúmlega 17:00 þá fannst mér ég ekki hafa gert nægilega mikið úr deginum, sem sagt það að klára Saw og hanga í FM 2005 er ekki nóg fyrir svona metnaðargjarnan einstakling eins og mig.

Ég tók mig til og fór í sturtu, setti sjampú í hár mitt og smellti smá kóndisjón líka. Henti líka svona scrubi í grímuna á mér og þvoði á mér tærnar, setti smyrls á Balkanskagasárið á hægra lærinu á mér og fór að læra stærðfræði.

Ég sem sagt lærði heima í stærðfræði, eitthvað sem ég hef ekki gert síðan kreppan skall á upp úr 1930.

Djöfull er ég fokking nettur núna.


b-dawg

| sunnudagur, ágúst 27, 2006

Líf mitt er alveg virkilega ágætt þessa dagana fyrir utan brunasárið sem ég er með á utanverðu hægra lærinu, þetta brunasár er á stærð við Balkanskaga og er þetta alls ekki ofmat á stærð þess. Já, andskotinn, ég fékk þetta sár í knattspyrnuleik við ÍBV síðastliðinn föstudag og mér fokking helsvíður ennþá og hérna væl,væl, væl, væl,væl, væl.

Ég er virkilega sáttur með mína menn í Manchesterborg, nú tróna þeir á toppi deildarinnar og horfa niður á félög eins og Chelsea, Liverpool og Arsenal. Vissulega er ég kokhraustur núna eftir þrjár umferðir, þetta getur auðvitað breyst á einstaklega stuttum tíma, en svona er þetta núna og ég er sáttur.

b-dawg

| miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Já, ég var bara e-ð geðveikt mikið að DJAMMA á menningarnótt hérna um daginn, ég var bara eitthvað að djamma geðveikt, og auðvitað er fokking djammmynd af mér á POSE.IS!!!

Nákvæmlega, þetta er það sem ég er að tala um, þegar ég fer að fokking djamma, þá bara kemur alltaf mynd af mér á POSE.IS!!

Nákvæææmlega.

Feitt, ég veit. Sjittfeitt alveg.



En í aðra sálma, þessi menningarnótt er ömurleg, eða jafnvel ætti ég að kalla slíka nótt ómenningarnótt þar sem ungviðið Íslands nær sér í subbulegan bakpoka og geymir subbulegan landa í slíkum bakpoka. Kannski er ég bara orðinn of gamall, ég veit það ekki. Samt, virkilega skemmtileg paradoxa ( þversögn ) að á menningarnótt er mesta ómenningin, já, gaman að þessu.

Þetta líf.


b-dawg

| föstudagur, ágúst 18, 2006

Já, ég er geðveikt kominn heim, ég nenni ekki að skrifa sjitt núna. Ferðin var drullugóð en landið Tyrkland hins vegar drulluvont, ekki fara þangað.

Ég tók eiginlega bara myndir af mínu fólki, nennti ekki að vara læna öpp e-m strangers, það er ekkert sexí.


Myndir frá Tyrklandi

b-dawg

|

Ýmsar upplýsingar:

msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com