Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.






Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Ég lagði leið mína í bæinn um helgina, sá lífræna efnafræðikennarann minn. Hún kennir mér lífræna efnafræði, hún kennir mér ekki efnafræði og er lífræn, eða bíddu jú, hún er lifandi, þar af leiðandi lífræn. Maður ætti að segja “lífrænu efnafræðikennarann”, en ég er bara svo flippaður.

Út í aðra sálma, ég var að læra undir líffræðipróf í gær, þar las ég setningu eina:

“Bakteríur stunda ekki kynæxlun en kynferðisleg endurröðun erfðaefnis getur orðið á þrennan hátt”

Aldrei hefði ég haldið að ég myndi heyra orðin “kynferðisleg endurröðun erfðaefnis” saman, jáhh, magnað alveg.

Úr einu í annað.

Feis dagsins var pottþétt þetta:

Eyþór: Ohh man, mánudagar eru svo langir!

Beggi: Ég meina þú ert langur samt er ég ekki alltaf að kvarta.

Haha feis.

Þess má geta að Eyþór er yfir 1,90 á hæð.

En aftur úr einu í annað.

Blómabarn dagsins er tvímælalaust ég:



Ég held að ég þurfi ekki að útskýra þetta frekar.

Myndirnar af árshátíðinni er komnar, sælar! Hérna til hægri.

B-dawg


Responses to “”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com