Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.






Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Gríðarlega sáttur með gærkvöldið, MR-ví í gær. Það fór allt saman frekar vel. Mættu alveg skítfáir í Hljómskálagarðinn um daginn. MR hafði betur þar, 8-6 held ég. Það var alveg sérdeilis prýðilegt að horfa á MR yfirbuga vesslinga. Þó að ég sé ekki þessi "aaaaa...hh! fokking hommar í fokking vessló, fokk ass bitts!" týpa þá er alltaf gaman að sjá MR taka vessló í brauðbúðina(sem sagt bakaríið).

Svo að sjálfsögðu var ræðukeppni milli MR og ví í eitthverjum bláum sal. Þessi salur er bara með blárri sölum sem ég hef séð lengi. "Anywhoo"(sjitt hvað er asnalegt að segja þetta,diss, haha) fannst mér MR vera mikið betri og stóð Gunnar Örn sig eins og hetja og líka bara allt liðið, gríðarlega sáttur með þetta.

Mér fannst líka alveg fáránlegt þetta með ræðumann kvöldsins. En eins og ég segi ég er bara leikmaður.

Matgæðingarnir fóru í Kínahúsið í gær, meðalmennskan uppmáluð, mun umsögn koma um staðinn á matgæðingana brátt, svo bara veriði alveg snilldarróleg.

b-dawg


Responses to “”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com