Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



Heimakær vesalingur




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Ég er ekki frá því að fjölmargir heimilisfeður noti Formúluna eða Múluna sem tylliástæðu til þess að gera ekki neitt þegar þeir eru þunnir á sunnudögum. Já, ég er eiginlega bara alveg viss um það. Ótrúlega þægilegt sjónvarpsefni fyrir þunna heimilisfeður, það þarf ekkert að hugsa of mikið um hvað maður er að horfa á. Það næstum því alveg víst að þessi rauði bíll fari einn annan hring. Svo þegar krakkarnir eru með eitthvað sjitt þá er svarið einfalt.

"ekki núna ástin mín ég er að horfa á Formúluna"

Hvað getur krakkaandskotinn sagt? Hann getur ekki sagt neitt, bara ekki neitt segi ég. Þetta er líka á svo gríðarlega þægilegum tíma, þetta er næstum fullkomið, ohh ég fíla svo þegar ég geri svona uppgötvanir.

b-dawg


Responses to “Heimakær vesalingur”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com