Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



The Shopkeeper




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Það var gömul mökkljótsjoppubeygluherfa sem reyndi að svindla á mér áðan, sem betur fer reif ég mig í gegnum lygavef hennar sló hana utan undir. Nei ég sló hana ekki utan undir, en ég ógnaði samt bakhönd, nei ég ógnaði henni ekki með bakhönd, ég gaf henni samt illt ógnarlegt augnaráð. Hún sá það alveg og já hún skammaðist sín. Hún skammaðist sín fyrir að reyna að svindla á fátæka námsmanninum. Það er sérstakur staður í helvíti fyrir svona fólk.

Svona gerðist þetta.

Mökkljótsjoppubeygluherfa: Það gera 530 kr.

Beggi: En þetta er lítill poki, ekki stór.

Mökkljótsjoppubeygluherfa: Æji, já úpps fyrirgefðu (hún gerði eiginlega of mikið úr voðbrögðum sínum, hún sá greinilega að ég væri athugull ungur drengur og var alveg viðbúinn því að ég myndi sjá í gegnum þennan svindlistarleikþátt sem hún var með þarna í leikhúsi lífsins)

Beggi: Já, takk fyrir (illt ógnarlegt augnaráð)

já, þannig er nú það. Hvað getum við lært á þessu? Jú, ef þú ert mökkljótsjoppubeygluherfa þá áttu ekki að vera með neitt sjitt og reyna á klekkja á meistaranum.

b-dawg


Responses to “The Shopkeeper”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com