Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



Starfsumhverfi...




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Í dag fékk ég tvö komment, fyrst var þá frá mjög roskinni konu sem sagði að ég væri með þægilegur ungur maður, aldrei hef ég heyrt orðið "þægilegur" í þessu samhengi en aftur á móti þá hef ég aldrei hitt mig í persónu sem ókunnugur maður. Þannig að það getur bara alveg vel verið að ég sé þægilegur ungur maður í kringum fólk sem ég þekki ekki bofs.


Seinna kommentið var frá fyrrverandi samgönguráðherra Matthíasi Bjarnasyni, sem sagði að ég væri prýðilegur ungur maður.



Ég er greinilega að gera mjög góða hluti. Spurning hvort maður fari að stunda Vinabæ meira, maður er að falla svona vel í kramið hjá gamla fólkinu, ég sé til.


Burg


Responses to “Starfsumhverfi...”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com