Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



Dýrt spaug...




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Ekki góður dagur fyrir Beggaling í dag, ég er eiginlega að hugsa um að fara bara í fýlu.


Byrjum á því að gera jafntefli við Reading í fyrsta leik, Rooney meiddur útaf í hálfleik. Kemurí ljós að hann verður frá í tvo mánuði, eins og hann leit nú vel út aumingja strákurinn, ohh það var fokking súrt.

Ekki bara það, ég var að spila knattspyrnu, missteig mig og nú er ég bólginn eins og e-r asni, með kæligel inn í sokk á ökklanum á mér, væli væli væli væli. Væl.


Það er samt alveg ótrúlega gaman að væla, svona áhugamál hjá mér. Samt virðist fólkið í kringum mig ekkert taka vel í það, pirrar sig á krúttlega vælinu mínu, finnst það vera bölvuð ókurteisi. Skammist ykkar.



Beggi frændi...


Responses to “Dýrt spaug...”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com