Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



Karlmennska




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Ég hef persónulega komist að því að ég er ekki nægilega mikill karlmaður. Þó að ég sé kominn af víkingaættum þá er ég bara kettlingur. Alveg bara með meiri kettlingum á landinu. Víkingarnir voru alltaf e-ð að berjast, éta hrátt kjöt og vera harðir.

Ég hef aldrei lent í slag, borða ekki hrátt kjöt og er einfaldlega drulluhræddur við geitunga. Geitungar voru væntanlega ekki komnir til landsins þegar víkingarnir voru uppi, en ef þeir hefðu verið þá hefðu þeir örugglega drepið geitungana með sverðinu sínu, stóra karlmannlega sverðinu sínu. Ég á ekki stórt og karlmannlegt sverð.

Það ráð sem ég, Gunnar Örn og Eyþór notuðum til þess að losa okkur við þennan geitung var heldur ekki karlmannlegt. Við náðum honum í glas á mjög svo karlmannlegan máta en drekktum honum svo í vaskinum á virkilega ókarlmannlegan máta.

Ég er þó að vinna í mínum málum, ég er kominn með starf sem stöðumælavörður Reykjavíkurborgar. Svo ætla ég að gefa út bók í haust sem heitir Stöðmælasögur. Ég mun þó væntanlega birta e-a kafla hér.

B-Solid


Responses to “Karlmennska”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com