Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.






Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Jahh ég væri nú að ljúga ef ég segði að mér væri ekki brugðið þessa stundina. Kom ekki bara fluga út úr naflanum á mér rétt í þessu. Ég var slakur að læra bragfræði hallaði mér aðeins aftur, það mikið að magalingurinn kom í ljós, næst tek ég eftir flugu. Hún hafði sem sagt bara komið út úr þessu naflafyrirbæri. Ég verð nú bara að viðurkenna það að ég vissi aldrei hvað þessi nafli átti að gera. Hah! Nú veit ég það, maður fær gefins flugur úr honum. Var að hugsa um að sleppa nokkrum jólagjöfum og gefa bara naflaflugur.



Þessir líffræðingar vita ekki rassgat. Svona er þetta í alvörunni. Það ber að taka fram að þessi óhuggulegi nafli er ekki minn nafli, minn er miklu krúttlegri.

Alltaf er maður að læra.

Við þess einstaklinga með þetta plebba"klukk" hef ég bara eitt að segja:

"Ég tek ekki þátt í þessu".

Takk fyrir mig.


b-dawg


Responses to “”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com