Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



Illa orðað...




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Ég var á götunni í dag eins og gerist nánast á hverjum degi núna. Ég var á vappi í Hafnarstrætinu leitandi að lögbrjótum þegar þessi indæla gamla kona kemur upp að mér og segir:


Gamla kona: Ég er alveg lögleg þarna er það ekki?

beggi: Jújú, ef það er mælir við bifreiðina.

Gamla kona: Já, það er mælir fyrir framan hana.

beggi: Þá ætti þetta að vera í lagi.

Gamla kona: Það er 14 mínútur í mælinum og ég er svona 10 cm upp á gangstétt.

beggi: Ég ætla nú ekki að refsa þér fyrir það.



Svona eftir á að hyggja hefði ég ekki á nota sögnina "að refsa". Ég hló. Gamla konan hló líka. Aðhlátursefnið var hins vegar ekki það sama hjá báðum aðilum, gamla konan var að hlæja af hamingju vegna þess að hún hafi hitt svona fáránlega nettan stöðumælavörð, undirritaður hló hins vegar af því að hann notaði sögnina "að refsa" í samtali við gamla konu.


Fjöríessu.


burg.


Responses to “Illa orðað...”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com