Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



Fordómar...




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Ég var að leysa af í hádeginu í dag í Ráðhúsi Reykjavíkur. Það er kannski ekki merkilegt. Jú kannski, kannski finnst e-m það vera merkilegt. Það kom maður að mér, í svörtum klæðnaði, vel til hafðir og bara nokkuð nettur myndi ég halda. Hann opnaði samræðurnar.


Maður: Er þessi þarna hommi enn þá með kaffihúsið hérna í ráðhúsinu.

Bergur: Ég var bara hreinlega veit það ekki.

Maður: Veistu það ekki! Ert þú ekki maður sem á að geta svarað svona spurningum.

Bergur: Haha, já það er spurning.

Maður: Jahh, mér finnst það, jæja.

Bergur: Jájá, svona er þetta.

Maðurinn spígsporar í burtu svona 10 metra, snýr svo við og labbar aftur að mér og hvíslar.


"Það þarf nú aldeilis að stokka upp ef hommarnir eru komnir í Ráðhúsið líka,"


Bergur brosir vandræðalega og segir: Finnst þér það.

Maður: Já, ekki spurning, djöfulsins vitleysa.

Svo labbaði hann í burtu. Haha. Þetta var nú fyndið þrátt fyrir að ég styðji alls ekki þessa fordóma hjá manninum. Það sem gerist ekki í Ráðhúsinu. Já, það sem gerist ekki.


burg.


Responses to “Fordómar...”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com