Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.
Almúgurinn beint í æð...
Published fimmtudagur, janúar 08, 2009 by Kapteinn nettur | E-mail this post
...Er það að heyra hóp af bensínafgreiðslufólki rökræða um það hversu margar canjun og beikonpylsur eigi að steikja yfir daginn.
Ég hef ekki fjárhagslegt bolmagn í að tríta strákinn með canjungleði eða beikonsælu. Svo ég fékk mér vínarpylsu. Hún smakkaðist.
Gunnarsson út.