Ég var skoða fótbolta.net rétt áðan og las fréttir um viðtal við leikmenn íslenska landsliðsins. Þeir voru að tala um landsleikinn á laugardag.
Já, þetta er bara bölvað væl, hættið að væla og vinnið leikinn, þetta er á móti fokking Liktenstein, ég kann ekki einu sinni að stafsetja þetta helvíti.
B-Solid
Ég gerði stuttmynd í prófunum sem heitir "köttur á vergangi", þetta er kannski ekki löng mynd en hún er alveg drulluartí og slíkt.
Köttur á vergangi from
Bergur on
VimeoÉg setti símann minn í þvottavélina, ég efast um að ég muni tala í hann aftur.
Já, Tjarnarhringurinn er ekkert snilld. Þurfti að taka hann núna áðan vegna þess að ég er búinn að vera slakur í all vor og alltaf beilað á að taka hann vegna veikinda eða meiðsla. Það var þó alveg þokkalegt að skokka í þessu blíðviðri. Náði 9 með hörkunni einni saman. Þó að ég sé kannski ekki mikið karlmenni (vísa í síðasta póst) þá er ég samt fokk harður.
Svo sá ég líka ógeðslega töff stöðumælavörð á leiðinni. Hann var á hvítum litlum Yaris og í virkilega þröngum stöðumælavarðapólóbol þannig að byssurnar sáust alveg drulluvel. Svo var hann með sólgelraugu og bara ofboðslega töff karakter.
Djöfull er hann örugglega duglegur að sekta. Jesús.
Ég hef persónulega komist að því að ég er ekki nægilega mikill karlmaður. Þó að ég sé kominn af víkingaættum þá er ég bara kettlingur. Alveg bara með meiri kettlingum á landinu. Víkingarnir voru alltaf e-ð að berjast, éta hrátt kjöt og vera harðir.
Ég hef aldrei lent í slag, borða ekki hrátt kjöt og er einfaldlega drulluhræddur við geitunga. Geitungar voru væntanlega ekki komnir til landsins þegar víkingarnir voru uppi, en ef þeir hefðu verið þá hefðu þeir örugglega drepið geitungana með sverðinu sínu, stóra karlmannlega sverðinu sínu. Ég á ekki stórt og karlmannlegt sverð.
Það ráð sem ég, Gunnar Örn og Eyþór notuðum til þess að losa okkur við þennan geitung var heldur ekki karlmannlegt. Við náðum honum í glas á mjög svo karlmannlegan máta en drekktum honum svo í vaskinum á virkilega ókarlmannlegan máta.
Ég er þó að vinna í mínum málum, ég er kominn með starf sem stöðumælavörður Reykjavíkurborgar. Svo ætla ég að gefa út bók í haust sem heitir Stöðmælasögur. Ég mun þó væntanlega birta e-a kafla hér.
B-Solid