Sá drengur er ritar hér ber nafnið Bergur. Hann er kempa eins og ætti ekki að fara framhjá lesendum þessarar bloggsíðuHér á þessari guðsvoluðu síðu kemur kempan hugsunum sínum á starfrænt form. Enda er mjög mikilvægt að vera á tánum og nota sér tækni nútímans. Það á að grípa gæsina meðan hún gefst, þetta er mikið speki, svokölluð kempuspeki Kempuspeki er dularfullt fyrirbæri, enginn skilur hana algerlega nema kempan sjálf. Krakkar ekki vera svo með eitthvað helvítis djöfulsins andskotans orðbragð hérna á síðunni. Annars fáiði karöflu eða vont nammi í skóinn, jább, það er rétt, ég ræð yfir jólasveinum.



Meiðsli.




Remember me (?)



All personal information that you provide here will be governed by the Privacy Policy of Blogger.com. More...



Gunnarsson smellti sjálfum sér bolta í gær. Ekkert áhugavert við það nema að ég fékk alveg fáránlegt högg á sköflunginn, grimmt, mjög grimmt. Ég kippti mér ekki mikið upp við þetta fyrst, fann þó e-a bungu á buxunum eftir nokkrar mínútur. Þetta var þó ekki svona góðærisklofbunga, heldur var þetta kreppubunga á leggnum á mér, ekki gott. Ég skoðaði þetta, þá kom í ljós þessi hrottalega bólga. Eins og það væri megaóþroskaður tvíburi á leggnum á mér, hræðilegt gjörsamlega.




Bendi lesendum á hrottalega bólgu rétt fyrir neðan hné. Þetta var vont. Gunnarsson grét samt ekki. Ekki sjens. Ekki á minni vakt. Ég kældi þetta þó eins og sönnum fagmanni ber. Núna er ég með mar á stærð við rosalega stórt svæði á leggnum. Þetta líf.


Þetta líf.

Líf.


Gunnarsson út.


Responses to “Meiðsli.”
  • Leave a Reply

          Convert to boldConvert to italicConvert to link

     


    Ýmsar upplýsingar:

    msn: beggibambus@hotmail.com meil: bergurg@gmail.com