Ég var að lesa á fótbolti.net að Guðjón Þórðarson hefði áhuga á að taka við Notts County, haha þetta kætti mig mjög.
Gat maðurinn ekki beðið aðeins lengur til að það væri ekki jafn djöfulli augljóst hvað hann væri að gera, hvers vegna hann rifti þessum samning. Þetta kalla menn í faginu, nei bíddu hvað var það aftur, já auðvitað, orðið var heimska og kjánagangur.
Hann er samt meistari.
Ég lærði smá í dag, ég gerði líka tvær sprengjur, það var sko gaman.
Ég kalla þær tilraun A og tilraun B.
Tilraun a:
Var að læra efnafræði, hugurinn byrjaði að reika. Ég mundi eftir nokkrum froskapökkum í skúffuni hjá mér. Innihaldið var:
Eitt blýbox
Froskapúður úr einum froski(ekki úr alvöru froski, bara svona sjitt.)
Þráður úr froski(ekki úr alvöru froski, bara svona sjitt.)
Eitt blað til þess að geyma púðrið
Ein matskeið af góðu skapi
Doddi með myndavél
Hvellurinn var ósannfærandi, kom ekki vel út á myndskeiðinu sem Doddi tók.
Tilraun b:
Var að læra efnafræði, hugurinn byrjaði að reika, ég mundi hvað ég hafði gaman að fyrri tilrauninni, ákvað að gera þetta aftur. Innihaldið var:
Eitt íbúfen pillubox
Froskapúður úr fjórum froskum(ekki úr alvöru froskum, bara svona sjitt.)
Þráður úr froski(ekki úr alvöru froski, bara svona sjitt.)
Eitt blað til þess að geyma púðrið
Ein matskeið af góðu skapi
Doddi með myndavél
Hvellurinn var góður, þessi sprenging skyldi eftir svart far á stéttinni, Þórður notaði frasann:"sjitt maður". Reykurinn var gífurlegur. Beggi var mjög sáttur, hins vegar skilaði hvellurinn sér alls ekki á myndskeiðið,en sú staðreynd að Þórður hafi sagt "sjitt maður" segir meira en margar myndir. Þórður er geysilega sterkur einstaklingur og lætur fátt koma sér á óvart.
Þetta var gaman og fullt gaman líka.
B-dawg
Smá update hérna, eins og sjá má, var seinni bomban gríðarlega öflug:
Sjitt!Gríðarlegt alveg
B-dawg